Песня Lækurinn в исполнении Steindor Andersen - слушать онлайн в хорошем качестве или скачать трек в Mp3 бесплатно на ПК или телефон.
5:50 MP3, 8.4MB, 192kb/s
Текст песни Steindor Andersen - Lækurinn
Ég er að horfa hugfanginn
í hlýjum sumarblænum
yfir litla lækinn minn,
sem líður fram hjá bænum
Ó, hve marga æskustund
áður hér ég dvaldi,
saklaust barn með létta lund,
og leggina mína taldi
Bæ ég lítinn byggði þar
og blómum utan skreytti.
Yfir tún og engjarnar
oft ég læknum veitti
Nú er ekkert eins og fyr;
á öllu sé ég muninn:
löngu týndir leggirnir
og litli bærinn hruninn
Æska hverfur, yndi dvín
Allt er líkt og draumur
Áfram líður æfin mín
eins og lækjarstraumur
Meðan æðum yljar blóð
og andinn má sig hræra,
skal ég syngja lítil ljóð
læknum silfurtæra
Þegar eg er uppgefinn
og eytt hef kröftum mínum,
langar mig í síðsta sinn
að sofna á bökkum þínum